01.03.1976
Efri deild: 68. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 2267 í B-deild Alþingistíðinda. (1864)
143. mál, flokkun og mat ullar
Steingrímur Hermannsson:
Herra forseti. Með örfáum orðum vil ég leggja áherslu á þá skoðun mína að hér sé um ákaflega mikilvægt mál að ræða. Mér þykir ljóst af ýmsu sem fram hefur komið, m.a. af skýrslu iðnþróunarnefndar um ullariðnað, að mjög miklir möguleikar eru hjá okkur íslendingum að efla verulega framleiðslu úr innlendri ull, jafnvel svo að skipt getur nokkrum þúsundum millj. kr. Ég vil því taka undir það, sem ég hygg að hafi komið fram hjá hæstv. landbrh. við 1. umr. um þetta mál, að kanna þarf hvort ekki er rétt að færa niðurgreiðslur í landbúnaði yfir á ullarframleiðsluna, þannig að niðurgreiðslan megi verða hvetjandi fyrir bændur til að framleiða sem best hráefni í þennan mikilvæga iðnað okkar íslendinga. Sýnist mér að með þessu frv. sé lagður grundvöllur að því að slíkt verði unnt. Ég fagna því að þetta mun vera í athugun hjá hæstv. ráðh., og ég vona að við fáum fljótlega að sjá þær breytingar þar á sem geta skapað þennan grundvöll sem ég hef hér minnst á.
Ég hygg, að það sé staðreynd að við íslendingar þurfum mjög á næstu árum að auka ýmiss konar iðnaðarframleiðslu okkar, og það er áreiðanlegt að farsælast mun það reynast sem byggt er á innlendu hráefni. Er vel ef svo er hægt að auka ullarframleiðsluna eins og fram kemur í þeim athugunum sem nú hafa verið sýndar. Ég vil því fyrir mitt leyti fagna þessu frv. og legg áherslu á það sem ég vona að á eftir fylgi.