04.03.1976
Efri deild: 71. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 2354 í B-deild Alþingistíðinda. (1953)

157. mál, aðild Íslands að samningi um aðstoðarsjóð Efnahags- og framfarastofnunarinnar

Jón Helgason:

Herra forseti. Fjh.- og viðskn. hefur rætt frv. til l. um aðild Íslands að samningi um stofnun aðstoðarsjóðs á vegum Efnahags- og framfarastofnunarinnar á tveimur fundum. N. var sammála um að mæla með samþykkt frv., eins og það liggur hér fyrir, en fjarverandi við afgreiðsluna var Albert Guðmundsson.