09.03.1976
Sameinað þing: 61. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 2476 í B-deild Alþingistíðinda. (2066)

72. mál, niðurgreiðslur á landbúnaðarafurðum

Páll Pétursson:

Herra forseti. Þar sem flm. eru allir farnir úr húsinu, væntanlega heim til sin að sjóða niðurgreiddar landbúnaðarafurðir, þá óska ég eftir því, að þessu máli verði frestað þangað til þeir sjá sér fært að sækja hér fund í hv. Sþ. (Forseti: Ég tel sjálfsagt að verða við tilmælum um að fresta umr. og geri það hér með.)