04.11.1975
Sameinað þing: 11. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 340 í B-deild Alþingistíðinda. (207)

14. mál, raforkumál á Snæfellsnesi

Friðjón Þórðarson:

Herra forseti. Ég þakka hæstv. iðnrh. fyrir svarið. Það er að sjálfsögðu mikið fagnaðarefni að þessi lína, sem ég spurði um, verði tengd á þessu hausti. Þá er aðeins eftir að leggja rafmagn á nokkra bæi á Vesturlandi og þarf að gera skipulagt átak í þeim efnum og svo að sjálfsögðu að styrkja línur viða og gera þessa orku sem öruggasta því að á hana þurfa margir að treysta.