10.03.1976
Neðri deild: 75. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 2504 í B-deild Alþingistíðinda. (2078)

192. mál, jafnrétti kvenna og karla

Iðnrh. (Gunnar Thoroddsen):

Eins og hv. síðasti ræðumaður tók fram er þetta frv. fyrst og fremst stefnumarkandi og má vel vera að sitt sýnist hverjum um ýmis einstök ákvæði frv. Ég vil taka það fram út af þeim ábendingum, sem hér hafa komið fram, að þær verða að sjálfsögðu vandlega skoðaðar í þeirri n. sem málið fær til meðferðar. En fyrst og fremst vil ég þakka þeim þm., sem tekið hafa til máls, fyrir undirtektir þeirra. Ég vænti þess, miðað við þær ágætu undirtektir undir þetta frv., að það eigi góðu fylgi að fagna í Alþ. og nái að verða að lögum á þessu þingi.