29.03.1976
Neðri deild: 85. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 2803 í B-deild Alþingistíðinda. (2335)

Varamaður tekur þingsæti

Forseti (Ragnhildur Helgadóttir):

Mér hefur borist svo hljóðandi bréf:

„Reykjavík, 25. mars 1976, Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og mun því ekki geta sótt þingfundi næstu vikur, leyfi ég mér að biðja um fjarvistarleyfi og með skírskotun til 138. gr. laga um kosningar til Alþ. að óska þess að 1. varamaður Framsfl. í Reykjavík, Sverrir Bergmann læknir, taki sæti á Alþ. í fjarveru minni.

Þórarinn Þórarinsson, 4. þm. Reykv.“ Það þarf ekki að athuga kjörbréf Sverris Bergmanns, þar sem hann hefur áður tekið sæti á þessu þingi. Býð ég hann velkominn til starfa í deildinni.