30.03.1976
Sameinað þing: 71. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 2811 í B-deild Alþingistíðinda. (2350)

Varamaður tekur þingsæti

Frsm. (Pálmi Jónsson):

Herra forseti. Kjörbréfanefnd hefur fjallað um kjörbréf Ólafs Óskarssonar bónda, 2. varaþm. Sjálfstfl. í Norðurl. v., er tekur sæti Eyjólfs H. Jónssonar, 4. þm. Norðurl. v., sem nú dvelur erlendis í opinberum erindum. Fyrir lá einnig yfirlýsing frá 1. varaþm. Sjálfstfl. í kjördæminu um að hún gæti ekki að þessu sinni tekið sæti á Alþingi. N. mælir einróma með því að kosning varaþm. sé metin gild og kjörbréfið samþ.