08.04.1976
Neðri deild: 89. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 3171 í B-deild Alþingistíðinda. (2633)

180. mál, meðferð opinberra mála

Frsm. (Ellert B. Schram):

Herra forseti. Hér er um að ræða frv. til l. um breyt á l. um meðferð opinberra mála. Samkv. gildandi lögum er sektarheimild lögreglustjóra bundin við 10 þús. kr. og sektarheimild lögreglumanna bundin víð 3000 kr. Fjárhæðir þessar hafa staðið óbreyttar frá árinn 1973. Talið er nauðsynlegt að þessar sektaheimildir fylgi verðlagsþróun, og því er lagt til í þessu frv. að upphæðirnar hækki úr 10 þús. kr. í 60 þús. kr. og úr 3 þús. kr. í 7 þús. Mál þetta hefur nú þegar hlotið afgreiðslu og samþykki í Ed. og allshn. þessarar d. hefur athugað frv. og mælir með samþykkt þess.