03.05.1976
Efri deild: 94. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 3463 í B-deild Alþingistíðinda. (2852)

241. mál, fjarskipti

Albert Guðmundsson:

Herra forseti. Þegar ég kvaddi mér hljóðs hélt ég að ég væri að kveðja mér hljóðs um það mál sem virðist eiga að koma hér næst á eftir, en það er frv. til l. um breyt. á l. nr. 6 1974, um tollskrá o.fl. (vegna fatlaðs fólks). En ég skal ekki hafa þessa ræðu mína miklu lengri. Ég ætla að hafa hana góða og segja það eingöngu að ég legg til að þessi frv. bæði, þetta frv., sem nú er til umr., og eins það sem kemur hér næst til umr., verði samþ. og helst samhljóða í þessari hv. deild.