03.05.1976
Neðri deild: 94. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 3474 í B-deild Alþingistíðinda. (2867)

Varamaður tekur þingsæti

Forseti (Magnús T. Ólafsson):

Borist hefur svo látandi bréf:

„Reykjavík, 27. apríl 1976.

Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og mun því ekki geta sótt þingfundi næstu vikur, leyfi ég mér að biðja um fjarvistarleyfi og með skírskotun til 138. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess, að 1. varamaður Alþb. í Vesturlandskjördæmi, Skúli Alexandersson útvegsmaður, taki sæti á Alþ. í fjarveru minni.

Jónas Árnason,

5. þm Vesturl.

Skúli Alexandersson hefur áður setið á þingi á þessu kjörtímabili. Kjörbréf hans hefur verið rannsakað. Býð ég hann velkominn til starfa.