03.05.1976
Neðri deild: 95. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 3512 í B-deild Alþingistíðinda. (2894)

266. mál, fjáröflun til landhelgisgæslu, ríkisfjármál o.fl.

Forsrh. (Geir Hallgrímsson):

Virðulegi forseti. Ég skal ekki lengja þessar umr., en ég vildi þó láta það koma hér fram, að ég gerði tilraun til þess að hafa samband við forseta Alþýðusambands Íslands í gær. Og sé það rétt hjá síðasta hv. ræðumanni að sú venja hafi skapast að hafa samráð eða kynna Alþýðusambandi Íslands efni væntanlegra efnahagsráðstafana, þá var ekki í þessu tilviki út af því brugðið, enda náðum við síðar saman eins og fram kom hjá hv. þm.