06.05.1976
Efri deild: 99. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 3700 í B-deild Alþingistíðinda. (2998)
258. mál, kjarasamningar Bandalags starfsmanna ríkis og bæja
Axel Jónsson:
Herra forseti. Ég skal við þessa umr. ekki vera langorður. Það er lagt til að málið komi til þeirrar n. sem ég á sæti í. En ég vil samt nú strax við 1. umr. málsins láta í ljós ánægju mína yfir að þetta frv. er fram komið, og það er byggt á samkomulagi sem gert hefur verið, — samkomulagi sem ég treysti fyllilega að verði til góðs. Ég hef þá trú að þetta sé réttlætismál sem hér er á ferðinni, og ég treysti opinberum starfsmönnum til að fara með þann rétt sem þeim er hér veittur innan vissra takmarkana. Það er fram tekið að uppi verði haldið öryggisgæslu og gæslu og er það vitanlega sjálfsagt og mun ekki hafa verið ágreiningsefni milli ríkisstj. annars vegar og stjórnar Bandalags starfsmanna ríkis og bæja hins vegar. Ég tel þetta mjög merkan áfanga, að frv. um þetta efni skuli vera flutt sem stjórnarfrv., fagna því og styð það.