06.05.1976
Neðri deild: 101. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 3787 í B-deild Alþingistíðinda. (3099)
154. mál, sálfræðingar
Frsm. (Sigurlaug Bjarnadóttir):
Herra forseti. Aðeins örfá orð. Ég lýsi mig samþykka hv. þm. Svövu Jakobsdóttur. Ég held að hennar skilningur sé réttur, og minn skilningur var í raun og veru sá sami. Ég tók fram í framsögu fyrir nál. að þarna væri um að ræða löggildingu á starfsheiti og starfsemi, og það er, held ég, alveg laukrétt athugað, að það er ekki fullkomin trygging fengin fyrir starfshæfni sálfræðings enda þótt hann hafi glæsileg próf frá bestu menntastofnunum Í höndunum. Því mun þetta greinilega vera hugsað sem vernd fyrir skjólstæðinga sálfræðinga, en ekki fyrir stéttina sem slíka. Ég mun því, ef til atkvgr. kemur, greiða atkv. gegn brtt. hv. 11. þm. Reykv.