11.11.1975
Sameinað þing: 13. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 493 í B-deild Alþingistíðinda. (313)
38. mál, staða Félagsheimilasjóðs
Fyrirspyrjandi (Jóhannes Árnason):
Herra forseti. Ég hef leyft mér að bera fram fsp. til hæstv. menntmrh. á þskj. 41 um stöðu Félagsheimilasjóðs. Fsp þessi er í fjórum liðum og hljóðar þannig, með leyfi forseta:
„1. Hversu mörg félagsheimili, sem eru í smíðum eða fullbúin, njóta nú styrks úr Félagsheimilasjóði skv. l. nr. 107 frá 1970?
2. Hver er skuld Félagsheimilasjóðs á lögboðnum 40% hluta stofnkostnaðar þessara félagsheimila, skipt eftir kjördæmum?
3. Hvað er áætlað að það muni taka Félagsheimilasjóð langan tíma að greiða upp umrædda skuld miðað við núverandi tekjustofna sjóðsins?
4. Hefur Félagsheimilasjóður notfært sér heimild í 5. mgr. 3. gr. l. nr. 107 frá 1910 til út gáfu skuldabréfa og þá í hve ríkum mæli?“
Það ætti að vera óþarft að fylgja þessari fsp. úr hlaði með mörgum orðum. Tilefnið er einfaldlega það að fá upplýst um stöðu sjóðsins nú og framtíðarhorfur til að hægt sé að gera sér grein fyrir því hvað sé fram undan við byggingu þeirra félagsheimila, sem nú eru í smíðum, því að enda þótt búið sé að gera verulegt átak við byggingu félagsheimila í mörgum héruðum landsins á liðnum árum, þá er það svo að annars staðar á langt í land að lokið hafi verið við fyrirhugaðar byggingar sem ráðist hefur verið í til að leysa brýnan vanda í félagslegri aðstöðu þessara byggðarlaga. Það hlýtur öllum að vera ljóst hvaða þýðingu það hefur fyrir hvert byggðarlag að hafa gott samkomuhús til að hægt sé að halda uppi eðlilegu félagslífi. Það hefur því löngum verið sérstakt áhugamál þm. utan af landsbyggðinni að efla beri Félagsheimilasjóð, því að reyndin hefur orðið sú að flest samkomuhús úti á landi hafa verið byggð skv. l. um Félagsheimilasjóð, nú lögum 107 frá 1970, og notið styrks úr þeim sjóði, en hámark styrks skv. þessum lögum getur orðið 40% af byggingarkostnaðinum. Tekjustofn Félagsheimilasjóðs er hluti af skemmtanaskattinum, skv. l. nr. 58 frá 1970, og er heimilt að verja allt að 90% af tekjum Félagsheimilasjóðs til að styrkja byggingar skv. lögunum, en 10% skulu renna í Menningarsjóð félagsheimila. Þá er í 5. málsgr. 3. gr. l. heimild fyrir Félagsheimilasjóð til að gefa út skuldabréf til allt að 15 ára með venjulegum vöxtum til að greiða styrki, bæði til félagsheimila, sem eru í smiðum, og eins húsa, sem lokið er við. Og 4. liðurinn í þessari fsp. lýtur einmitt að þessu atriði.
Ég vænti þess svo að fá glögg svör frá hæstv. menntmrh. við þessum fsp.