10.05.1976
Efri deild: 101. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 3890 í B-deild Alþingistíðinda. (3202)
238. mál, ferðamál
Menntmrh. (Vilhjálmur Hjálmarsson):
Herra forseti. Ég hjó eftir því að hv. flm. þessarar brtt. sagði í lok ræðu sinnar að það væri nauðsynlegt að gera ráðstafanir til þess að tryggja Ferðamálaráði fé til þess að standa undir kostnaði við slíkar breytingar, og ég skildi hann jafnframt svo sem hann teldi að það væri gert með þessari brtt. Ég er ekki alveg viss um að ég hafi skilið hann rétt. En hins vegar lít ég svo á, að vísu við fljótlega skoðun á þessu, að það sé ekki gert með þessari brtt. Sjóðnum er aðeins tryggt lánsfé, en það er auðvitað mjög nauðsynlegt að það sé frá því gengið að hann hafi fé til ráðstöfunar til þess að standa undir þessum tiltekna kostnaði með beinum greiðslum. Ég bendi nú á þetta að gefnu því tilefni að þá sjaldan að farið hefur verið inn á það að hanna skólahúsnæði með sérstöku tilliti til ferðamannanota og þá nokkru dýrara en ella, þá hefur leitt af því hrein vandræði. Það hefur ekki verið neins staðar peninga að fá til þess að greiða mismuninn.
Ég hygg nú satt að segja að það sé minni ástæða til þess nú heldur en var fyrir nokkrum árum að setja inn í lög ákvæði í þessa átt, vegna þess að það er orðin alveg viðtekin venja þegar gengið er frá heimavistarhúsnæði að þar geti gist bæði börn og fullorðnir, rúmin eru við það miðuð nú orðið ævinlega. Og í annan stað er alltaf gengið út frá því að það sé vatn á heimavistarherbergjum. Þetta gerir það að verkum að herbergin eru fullboðleg til gistingar, en eru þó ekki í dýrasta flokki eins og þau herbergi þar sem bað fylgir. Það er verulegur kostnaðarmunur á því hvort baðherbergi fylgja með eða ekki, en það er fyrst og fremst það sem um er að ræða hér. Og ég held það sé alveg nauðsynlegt að búa svo um hnúta að Ferðamálaráði, eða hverjir sem það eru sem ætlað er að standa undir þessum sérstaka kostnaði, þeim verði tryggt fé til þess, öðruvísi en lánsfé. Ef það kunni að vera meiningin að tekjur komi í gegnum reksturinn, þá held ég það sé mjög ótrygg tekjuöflun, satt að segja, miðað við það hvernig hótelrekstur hefur borið sig þar sem ég þekki til. Ég tel að það sé ekki brýn ástæða til að taka upp í löggjöf ákvæði sem þetta og beinlínis líka varasamt, nema sé þá séð fyrir fjármagni til þess að kosta það.