10.05.1976
Neðri deild: 103. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 3899 í B-deild Alþingistíðinda. (3214)

154. mál, sálfræðingar

Menntmrh. (Vilhjálmur Hjálmarsson):

Hæstv. forseti. Vegna ábendinga hv. síðasta ræðumanns, sem ég efa ekki að séu á rökum reistar, því að hann þekkir þessi svið mjög vel vegna starfa þar lengi, þá vil ég láta það koma fram að ég vil mjög gjarnan taka þann þátt þessara réttindamála til athugunar í samráði við þá sem hlut eiga að máli í Háskólanum.