11.05.1976
Efri deild: 102. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 3992 í B-deild Alþingistíðinda. (3291)

239. mál, Orkubú Vestfjarða

Steingrímur Hermannsson:

Herra forseti. Ég er sammála þeirri meginstefnu sem fram kemur í þessari brtt. Ég tel hins vegar óeðlilegt að hnýta við þetta frv. svo mikilvægri ákvörðun um stefnumörkun í raforkumálum landsins í heild. Ég fagna jafnframt þeirri yfirlýsingu sem kom fram hjá hæstv. ráðh. áðan, að að þessu muni verða unnið í sumar og till. þá liggja fyrir í haust. Ég segi því nei.