13.05.1976
Efri deild: 106. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 4159 í B-deild Alþingistíðinda. (3492)

75. mál, gatnagerðargjald á Akureyri

Axel Jónsson; Herra forseti. Ég mótmæli því að ég hafi slitið orð hv. 12. þm. Reykv. nokkuð úr samhengi þegar ég vitnaði til ræðu hans í fyrra og las hana orðrétt frá upphafi til enda. Ég hélt einmitt þessu sjálfur fram í fyrra. Ég var hlynntur því að þessi 5 ára regla væri samþykkt, það væri sett á vald hverrar sveitarstjórnar um sig að ákveða hvort hún notfærði sér það eða ekki, en það vildi hv. 12. þm. Reykv. ekki samþykkja.