13.05.1976
Neðri deild: 108. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 4179 í B-deild Alþingistíðinda. (3581)

218. mál, lyfsölulög

Frsm. (Jóa Skaftason):

Herra forseti. Heilbr.- og trn. þessarar d. hefur haft til athugunar frv. til l. um breyt. á lyfsölulögum, en það er 218. mál Ed. Ég sem formaður n. hef kynnt mér umsagnir sem voru sendar Ed., þ.e.a.s. umsagnir frá Dýralæknafélagi Íslands og Lyfsalafélagi Íslands sem eru jákvæðar um efni frv. Allir þeir nm., sem á fundi voru og undirrita nál. á þskj. 733, leggja til að frv. verði samþ. óbreytt.

Fjarverandi afgreiðslu málsins voru Jóhann Hafstein, Ragnhildur Helgadóttir og Vílborg Harðardóttir.