14.05.1976
Efri deild: 111. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 4334 í B-deild Alþingistíðinda. (3651)

197. mál, opinberar fjársafnanir

Helgi F. Seljan:

Herra forseti. Ég vil þakka hv. allshn. fyrir ágæta afgreiðslu á þessu máli. Ég tek það vitanlega fram um leið að allar brtt. n. eru sýnilega til bóta. Ég endurtek þakkir mínar fyrir afgreiðslu á málinu sem ég held að sé býsna brýnt fyrir okkur að hafa ákvæði um í lögum.