14.05.1976
Neðri deild: 110. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 4335 í B-deild Alþingistíðinda. (3657)

115. mál, íslensk stafsetning

Tómas Árnason:

Hæstv. forseti. Þótt ég segi já við þessa atkvgr., þá vil ég láta það koma fram að ekki mundi saka, eins og atvikum öllum er háttað, að fresta málinu til hausts svo að það fengi frekari athugun.