14.05.1976
Neðri deild: 110. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 4356 í B-deild Alþingistíðinda. (3695)

252. mál, tollheimta og tolleftirlit

Frsm. (Lárus Jónsson):

Virðulegi forseti. Fjh.- og viðskn. þessarar hv. d, hefur haft frv. um tollheimtu og tolleftirlit til athugunar. N. mælir einróma með því að það verði samþykkt eins og það kom frá Ed., sbr. þskj. 662.