14.05.1976
Efri deild: 114. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 4375 í B-deild Alþingistíðinda. (3732)

7. mál, almenningsbókasöfn

Frsm, meiri hl. (Axel Jónsson):

Herra forseti. Menntmn. þessarar hv. d. hefur fjallað um frv. eins og fram kemur á þskj. 803. Leggur n. til að það verði samþykkt eins og það kemur frá Nd., en hæstv. menntmrh. mælti fyrir frv. á fundi hv. d. í gær og vísa ég að öðru leyti til framsögu hans.

Ég endurtek, herra forseti, að n. leggur til að frv. verði samþ. eins og það var afgr. frá Nd., en fjarverandi afgreiðslu málsins voru þeir Ragnar Arnalds og Þorv. Garðar Kristjánsson.