14.05.1976
Efri deild: 114. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 4376 í B-deild Alþingistíðinda. (3736)

153. mál, viðskiptamenntun á framhaldsskólastigi

Frsm. meiri hl. (Axel Jónsson):

Herra forseti. Hv. menntmn. hefur athugað frv. þetta og mælir með samþykkt þess eins og hv. Nd. afgreiddi það. Fjarverandi afgreiðslu málsins voru, eins og fram kemur á þskj. 804, þeir Ragnar Arnalds og Þorv. Garðar Kristjánsson.

Herra forseti. Ég sé ekki ástæðu til þess að fara um frv. fleiri orðum. Það er svo örstutt síðan hæstv. menntmrh. mælti fyrir þessu máli hér í hv. þd.