17.05.1976
Efri deild: 116. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 4382 í B-deild Alþingistíðinda. (3753)

236. mál, skotvopn

Frsm. (Ingi Tryggvason):

Herra forseti. Nýja brtt. Stefáns Jónssonar, sem hér er lögð fram, hefur að vísu ekki verið borin undir allshn., en ég hef sem formaður n. leyft mér að bera hana undir þá menn í dómsmrn. sem meðal annarra unnu að samningu frv. þess sem hér liggur fyrir um skotvopn, sprengiefni og skotelda. Töldu þeir að jákvætt væri að þessu atriði yrði bætt inn í, og þó að ég sé að vísu einn af þeim hv. dm. sem lítið vit hafa á skotvopnum, þá lýsi ég því yfir að ég mun greiða þessari till. atkv.