17.05.1976
Neðri deild: 111. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 4426 í B-deild Alþingistíðinda. (3833)

192. mál, jafnrétti kvenna og karla

Ragnhildur Helgadóttir:

Herra forseti. Ég ítreka við þessa brtt. þann fyrirvara, sem ég gerði við 1. brtt., að orðið jafnstaða í heiti og greinum þessa frv. þýðir jafnrétti í reynd. Ég tel því spor aftur á bak að hverfa frá því orði og til þess, sem þarna er lagt til, og segi nei.