17.05.1976
Efri deild: 117. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 4441 í B-deild Alþingistíðinda. (3855)
251. mál, veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands
Jón Árm. Héðinsson:
Herra forseti. Því miður verð ég að harma það að hæstv. sjútvrh. skuli ekki vera viðstaddur þegar við erum að ræða þetta mikilvæga mál, og má vera meira en lítið álag að hæstv. ráðh, skuli ekki geta verið viðstaddur, svo óhemjumikilvægt sem þetta mál er að mínu mati og held ég fleiri þm. Hér erum við að leggja grundvöll að því að hagnýta fiskveiðilögsögu okkar rökrétt og vel, og sýndist mér og segi það hreint út — að ekkert mál geti verið það mikilvægt í þingsölum nú að hæstv. ráðh. skuli ekki fylgjast með umr. hér í Ed, um frv. og brtt. sem við höfum flutt. Það verður að hafa það ef hæstv, ráðh. metur önnur mál meira, en ég ítreka þetta sem mína skoðun og tel það afar merkilegt að annað mál skuli vera mikilvægara. En fyrst fundum er fram haldið þótt í matartíma sé og hæstv. ráðh. ekki viðlátinn vil ég láta mína skoðun koma ótvírætt í ljós.
Ég skrifa undir þetta nál. ásamt öðrum nm. þótt ég sé ekki ánægður með allt í brtt. En ég ætla sérstaklega að fjalla um 8. gr., en þar segir svo, eins og ég sagði við 1. umr: „Stefnt skal að því að auk eftirlits Landhelgisgæslunnar skuli sérstök eftirlitsskip, sem gerð verði út af Hafrannsóknastofnuninni, fylgjast með fiskveiðum í fiskveiðilandhelginni.“
Ég er ekki ánægður með þetta orðalag, en vildi þó ekki rjúfa samstöðu í n. vegna þess að hæstv. ráðh. hafði þrátt fyrir frv. gengið nokkuð til móts við þær raddir sem vildu auka eftirlitið, og það ber að þakka. Hins vegar veit ég að ég má það mæla, því að ég sannreyndi það ásamt öðrum þm, í hv. d. að hæstv. fjmrh. taldi nokkurt fé vera fyrir hendi í þessi skip.
Ég sé nú að hæstv. sjútvrh. hefur haft tækifæri til að koma inn í d., en ég var að harma það áðan, hæstv. ráðh., að svo miklar annir væru að ráðh. gæti ekki verið viðlátinn svo mikilvægt mál. En það er þakkarvert að hann skuli geta séð af sínum dýrmæta tíma til að hlusta á okkur hérna.
Ég verð að vænta þess að þrátt fyrir þessi orð: „stefnt skal að því“ takist að leysa þetta fjárhagsvandamál og við fáum eftirlitsskip eða eftirlitsbáta er hafi hér mikilvægu hlutverki að gegna, eins og við margir álítum og n., sem undirbjó þetta frv. efnislega, taldi mjög mikilvægt ákvæði. Hins vegar þakka ég hæstv. ráðh. fyrir að fallast á það sjónarmið að gefa meira svigrúm við skyndifriðanir sem menn eru alls staðar hringinn í kringum landið sammála um að þjóni mikilvægum tilgangi til að koma í veg fyrir smáfiskadráp.
Við höfum hlustað á aths. frá Hafranasóknastofnuninni varðandi 8. gr., og það er kveðið nokkuð fast að orði þegar sagt er: „Ráðh. setur sérstaka trúnaðarmenn um borð í veiðiskip eftir því sem þurfa þykir“ Hér er ákveðið tekið til orða, og ég vænti þess að þetta ákvæði verði hagnýtt og orðin „eftir því sem þurfa þykir“ gefi nokkurt svigrúm til þess að meta aðstæður. Og þó að sumum kunni að þykja þetta orðalag: „Ráðh. setur sérstaka trúnaðarmenn um borð“ vera þess eðlis að það sé skylda, þá er nokkur fyrirvari því að það verði að metast af Hafrannsóknastofnun og sennilega Fiskifélagi Íslands ásamt rn, Síðan hafa ákveðnir trúnaðarmenn svigrúm til að loka svæðunum allt að þremur sólarhringum. Það tel ég vera mikilvægt og það telja allir nm.
Um önnur atriði í þessu frv. skal ég ekki vera langorður. Ég vil vekja athygli á því að í 7. lið brtt. okkar er lögð á það áhersla að eigi sé heimilt að láta skip laust fyrr en dómur hefur verið kveðinn upp í máli ákæruvaldsins gegn skipstjóra skipsins eða full trygging hafi komið fyrir. Hér er nokkru fastar kveðið á en verið hefur, og nm. voru sammála um að það yrði að vera nokkuð föst venja í þessu og óviðunandi fyrirkomulag hafi verið hér undanfarið. Um nokkur fleiri atriði hafa verið gerðar brtt. sem ég vænti að fái stuðning hv. þd., og skal ég, herra forseti, ekki tefja tímann lengur við að rekja það, það hefur formaður okkar og frsm. þegar gert skilmerkilega.