19.11.1975
Neðri deild: 19. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 596 í B-deild Alþingistíðinda. (398)

2. mál, Framkvæmdastofnun ríkisins

Gylfi Þ. Gíslason:

Hæstv. forseti. Þetta mun vera í fjórða eða fimmta skipti sem frv. um Framkvæmdastofnun ríkisins er á dagskrá, en tekið út af dagskrá án nokkurrar skýringar. Ég æski eftir skýringu á því af hálfu hæstv. forseta hvers vegna þetta á sér stað, hver hefur óskað eftir þessu. Það eru ekki við flm. Hafi einhver annar gert það, þá vil ég gjarnan fá að vita hver það er og hvaða rök eru fyrir því.