18.05.1976
Sameinað þing: 92. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 4520 í B-deild Alþingistíðinda. (4082)

149. mál, brúargerð yfir Eyjafjarðará

Frsm. (Lárus Jónsson):

Herra forseti. Allshn. hefur haft til meðferðar till. til þál. á þskj. 311 um athugun á hagkvæmni brúargerðar yfir Eyjafjarðará nálægt Laugalandi. Till. þessi er um hagkvæmnisathugun, m.a. á því hvort spara megi íþróttamannvirki og skólamannvirki með þessari samgöngubót, og telur n. einsýnt með tilliti til þess að mæla með samþykkt till. Nál. er á þskj. 707 og þar mælir n. einróma með samþykkt till.