18.05.1976
Efri deild: 123. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 4531 í B-deild Alþingistíðinda. (4122)

192. mál, jafnrétti kvenna og karla

Albert Guðmundsson:

Herra forseti. Hv. 5. þm. Norðurl. e. olli mér miklum vonbrigðum. Ég hafði vonast til þess að hann gæfi mér tilefni til þess að deila við hann um þetta frv. En lokaorð hv. þm. voru besta innlegið í málflutningnum svo ég hef því miður ekki ástæðu til þess að bæta neinu við.