18.05.1976
Neðri deild: 117. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 4550 í B-deild Alþingistíðinda. (4140)

257. mál, jarðalög

Guðmundur H. Garðarsson:

Virðulegi forseti. Með vísun til brtt. á þskj. 866 við frv. frá landbn., við 13. og 14. gr., þar sem skýrt er tekið fram að eigi sé heimilt að beita ákvæðum þessara gr. né annarra nema hagsmunir umrædds sveitarfélags krefjist þess, og í trausti þess að umræddar brtt. verði samþykktar, segi ég já og greiði frv. í heild atkv. mitt.