19.05.1976
Sameinað þing: 94. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 4609 í B-deild Alþingistíðinda. (4220)

278. mál, bráðabirgðavegáætlun 1976

Gunnlaugur Finnsson:

Herra forseti. Enda þótt ég vísi ekki á bug að öllu leyti hugmyndinni um veggjald sem hugsanlegum tekjustofni, þá tel ég enga möguleika á að gera svo stóra breyt. nú á síðasta stígi við afgreiðslu vegáætlunar og segi því nei.