19.05.1976
Sameinað þing: 95. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 4613 í B-deild Alþingistíðinda. (4231)

Þinglausnir

Forseti Íslands (Kristján Eldjárn):

Gefið hefur verið út svofellt forsetabréf:

„Forseti Íslands gjörir kunnugt:

Alþingi, 97. löggjafarþing, hefur lokið störfum. Mun ég því slíta Alþingi í dag.

Gjört í Reykjavík, 19. maí 1976.

Kristján Eldjárn.

Geir Hallgrímsson.

Forsetabréf um þinglausnir.“

Samkvæmt þessu bréfi, sem ég nú hef lesið, lýsi ég yfir því að þessu þingi, sem nú hefur lokið störfum, er slitið. Óska ég alþm. velfarnaðar og góðs og gleðilegs sumars, þjóðinni allra heilla og bið alþm. að minnast fósturjarðar vorrar, Íslands, með því að rísa úr sætum.

Þingheimur stóð upp og iðnrh. (Gunnar Thoroddsen) mælti: „Heill forseta vorum og fósturjörð. Ísland lifi.“ Tóku þingmenn undir þau orð með ferföldu húrrahrópi.

Var síðan af þingi gengið.