25.11.1975
Sameinað þing: 20. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 646 í B-deild Alþingistíðinda. (436)
25. mál, húsnæðismál
Menntmrh. (Vilhjálmur Hjálmarsson):
Herra forseti. Fsp. hv. þm. vil ég svara á þessa leið:
Mál þetta er í athugun í rn. Áður en þeirri athugun lýkur mun haft samráð við Félag kvikmyndagerðarmanna, Sjónvarp, Fræðslumyndasafn og aðra þá aðila er málið helst varðar. Það hefur tafið athugun þessa máls að það er mjög samofið endurskoðun þeirri á skemmtanaskatti sem fram fer á vegum rn., og er raunar ókleift annað en fjalla um bæði málin samhliða, ef hafa á til hliðsjónar þann tekjugrundvöll, sem frv. til l. um kvikmyndasjóð byggir á, en það er fyrst og fremst hlutdeild í skemmtanaskatti.
Þeir aðilar, sem nú njóta góðs af skemmtanaskatti, eru Félagsheimilasjóður, Menningarsjóður og Sinfóníuhljómsveit Íslands, en allir þessir aðilar berjast í bökkum fjárhagslega. Það má einnig geta þess að ýmsir greiðendur skattsins kvarta undan því að hann sé of hár og þó fyrst og fremst ekki réttlátlega á lagður. Má geta þess að í frv., sem lagt var fyrir hið háa Alþ. á síðasta þingtímabili, var gert ráð fyrir að verulegur hluti skemmtanaskatts rynni í Ferðamálasjóð. Þáttur skemmtanaskattsins í máli þessu er því allflókinn og þarf nákvæmrar og vandlegrar athugunar við ef finna á viðunandi lausn á málinu.
Kvikmyndagerð, sem er með nokkrum hætti ný listgrein, hefur vart hlotið opinberan stuðning til jafns við aðrar listgreinar. Það er fullur vilji á því að stuðla að eflingu þessarar greinar og er þá bæði haft í huga mikilvægi hennar fyrir sjónvarp og mikilvægi fræðslu- og heimildarkvikmynda. Mun verða unnið að málinu í samræmi við það viðhorf rn.