27.11.1975
Sameinað þing: 25. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 903 í B-deild Alþingistíðinda. (523)

80. mál, samkomulag við Sambandslýðveldið Þýskaland um veiðar þýskra togara

Jónas Árnason:

Herra forseti. Það er aðeins örstutt aths. út af síðustu ræðu sem hæstv. iðnrh. flutti. Þar kvað við nokkuð annan tón, fannst mér, heldur en í þeirri ræðu sem hann hafði flutt núna fyrr í kvöld í útvarp. Ég vil segja út af þessari ræðu að það er mér gleðiefni, sérstakt gleðiefni, að hvað svo sem forfeður vorir kynnu að hafa sagt um þetta skv. sínum skilningi á orðinu prúðmennska, þá get ég flutt gömlum konum á Snæfellsnesi þær fréttir að hann Gunnar Thoroddsen virðist enn vera sama prúðmennið og hann var í „den tid“.