03.12.1975
Efri deild: 16. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 975 í B-deild Alþingistíðinda. (589)
88. mál, veiðar með botnvörpu, flotvörpu og dragnót í fiskveiðilandhelginni
Jón Árm. Héðinsson:
Herra forseti. Það verða ekki mörg orð, aðeins fyrirspurn. Það getur vel verið að það sé nauðsyn að kveða á um þessi viðurlög beint í lögum. En ég vil þá í leiðinni spyrja hæstv. dómsmrh. um hvernig fari með skip ef svo tækist til að það yrði staðið að því að hafa ólögleg veiðarfæri, hvort ekki yrði beitt meira en viðurlögum til að banna veiði. Ég tel rétt að sekta slíkt skip einnig. Það eru ströng ákvæði í okkar löggjöf um slíkt og minn skilningur er sá, þegar við höfum gert þennan samning, að þá nái okkar lög, eins og það var túlkað, held ég í umr., þá ná okkar ákvæði í lögum varðandi viðurlög og sektir yfir þau skip er veiðirétt hafa samkvæmt samkomulaginu sem gert hefur verið. Ég vil bara fá staðfest hvort þetta er réttur skilningur hjá mér, að séu viðurlög það alvarleg, þá komi sektir einnig til viðbótar veiðileyfissviptingu.