04.12.1975
Neðri deild: 21. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 992 í B-deild Alþingistíðinda. (630)

89. mál, vörugjald

Fjmrh. (Matthías Á. Mathiesen):

Herra forseti. Frv. bað, sem hér liggur fyrir, er flutt í framhaldi af setningu brbl. frá 16. júlí 1975 um sérstakt tímabundið vörugjald. Um tildrög þeirra laga leyfi ég mér að vísa til forsendna þeirra, en brbl. eru samkv. venju prentuð sem fskj. með frv. þessu. Hér er því um að ræða frv. til staðfestingar brbl. í samræmi við ákvæði stjórnarskrárinnar.

Ég leyfi mér að leggja til að frv. verði vísað til hv. fjh.- og viðskn.