04.12.1975
Neðri deild: 21. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 992 í B-deild Alþingistíðinda. (632)

90. mál, lántökuheimild til eflingar Landhelgisgæslunni

Fjmrh. (Matthías Á. Mathiesen) :

Hæstv. forseti. Frv. það, sem hér liggur fyrir, er flutt í framhaldi af setningu brbl. frá 29. júlí í sumar um lántökuheimild til eflingar Landhelgisgæslunnar. Um tildrög þeirra laga leyfi ég mér að vísa til forsendna þeirra. Brbl. eru að venju prentuð sem fskj. með frv. Hér er því um að ræða frv. til staðfestingar á brbl. í samræmi við ákvæði stjórnarskrárinnar.

Ég legg svo til, hæstv. forseti, að að lokinni þessari umr. verði frv. vísað til hv. fjh.- og viðskn.