08.12.1975
Efri deild: 19. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 1002 í B-deild Alþingistíðinda. (654)

19. mál, innheimta gjalda með viðauka

Frsm, (Halldór Ásgrímsson):

Herra forseti. Fjh.- og viðskn. hefur tekið frv. til l. um innheimtu ýmissa gjalda með viðauka til athugunar, en frv. þetta gerir ráð fyrir því að innheimta tiltekin gjöld á árinu 1976 með sömu viðaukum og á yfirstandandi ári. N. var sammála um að mæla með samþykkt frv. Fjarverandi afgreiðslu málsins var Jón Árm. Héðinsson.