09.12.1975
Efri deild: 20. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 1021 í B-deild Alþingistíðinda. (682)

101. mál, verðjöfnunargjald raforku

Iðnrh. (Gunnar Thoroddsen):

Herra forseti. Í gildandi lögum um verðjöfnunargjald af raforku er svo ákveðið að lögin gildi til ársloka 1975. þetta frv. fer fram á að framlengja lögin til ársloka 1976. Önnur breyt. felst ekki í þessu frv.

Eins og kunnugt er gengur verðjöfnunargjald af raforku til þess að greiða rekstrarhalla Rafmagnsveitna ríkisins og er reiknað með þessu verðjöfnunargjaldi í frv. til fjárlaga fyrir næsta ár.

Ég legg til að frv. verði vísað til 2. umr. og hv. iðnn.