10.12.1975
Neðri deild: 26. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 1093 í B-deild Alþingistíðinda. (749)

53. mál, Húsnæðismálastofnun ríkisins

Svava Jakobsdóttir:

Hæstv. forseti. Aðeins örfá orð. Ég vil þakka hæstv. ráðh. fyrir að skera úr um þetta vafaatriði. Að öðru leyti virtist mér hann vera heldur viðkvæmur fyrir málflutningi mínum, en ég ætla ekki að fara í neinn meting við hann hér. Þskj. munu skera úr um hvort okkar hafi rétt fyrir sér.