10.12.1975
Neðri deild: 26. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 1093 í B-deild Alþingistíðinda. (750)

53. mál, Húsnæðismálastofnun ríkisins

Iðnrh. (Gunnar Thoroddsen) :

Ég vildi aðeins undirstrika það, sem ég hef sagt áður, að hér er ekki um neinn ágreining að ræða. Efnislega er nákvæmlega það sama sem í báðum frv. var, og þetta með námsmennina, þá sem hyggjast hefja nám, hefði að sjálfsögðu rúmast innan stjfrv. eins og það var lagt fram og þótt það hafi verið lögfest óbreytt.