11.12.1975
Sameinað þing: 32. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 1116 í B-deild Alþingistíðinda. (767)

Umræður utan dagskrár

Jóhann Hafstein:

Hæstv. forseti. Ég vil þakka hæstv. dómsmrh. fyrir þær upplýsingar sem hann hefur gefið okkur. Ég skil alveg að hann óski ekki eftir að ræða að svo stöddu meira um þetta mál nú fyrr en nánari upplýsingar eru fram kommar. Ég tek undir orð hans og hv. þm. Benedikts Gröndal um að við þm. vonum að varðskipsmönnum líði nú öllum vel og að ekki hljótist frekari slys af þessari meinbægni í okkar landhelgi sem er ekki svo lítil eins og allir hv. þm. gera sér fyllilega grein fyrir.