11.12.1975
Efri deild: 22. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 1119 í B-deild Alþingistíðinda. (771)

110. mál, aukatekjur ríkissjóðs

Fjmrh. (Matthías Á. Mathiesen):

Herra forseti. Frv. það, sem hér um ræðir, er ætlað að koma í stað gildandi laga um aukatekjur ríkissjóðs frá árinu 1965. Á þeim áratug, sem er liðinn frá gildistöku þeirra laga, hafa orðið mjög stórfelldar breytingar á verðlagi og kaupgjaldi hér á landi eins og kunnugt er. Þessar breytingar hafa leitt til þess að verulegt misræmi hefur skapast í gjaldtöku hinna einstöku gjalda samkv. lögunum um aukatekjur ríkissjóðs. Þau gjöld, er miðast við fjárhæð tiltekinna skjala, eða eru á annan hátt tengd fjárhæðum tiltekinna lögskipta, hafa hækkað í samræmi við almenna verðlagsþróun. Á hinn bóginn hafa gjöld, sem bundin eru við tiltekna fjárhæð, í reynd lækkað stórkostlega og standa nú flest þeirra engan veginn undir þeim kostnaði sem leiðir af þeim dóms- og stjórnsýsluathöfnum sem þau eru tengd.

Frv. þetta gerir ráð fyrir nær óbreyttum tekjum ríkissjóðs af þinglýsingu skjala og af skipta- og uppboðsgerðum, en þessir tekjustofnar eru langþýðingarmestu tekjustofnar aukatekjulaganna. Hins vegar er frv. ætlað að skapa svigrúm til að tryggja að ríkissjóður fái jafnan eðlilega greiðslu fyrir þá vinnu og annan kostnað sem leggja verður í í tengslum við dómsmál, gerð og frágang skírteina og skjala og ýmiss konar eftirlitsstörf sem þeim eru tengd. Rétt er að vekja athygli á því, að gert er ráð fyrir að í reglugerð verði tölur einstakra dómsmálagjalda ákveðnar af dómsmrh., en þau gjöld, sem samræma þarf milli rn., svo sem vegna útgáfu skírteina ýmiss konar, verði álkveðin af fjmrh.

Að öðru leyti þarfnast frv. þetta vart skýringa og er skírskotað til grg. og þess sem þar er sagt um einstakar greinar frv.

Ég leyfi mér svo, herra forseti, að leggja til að að lokinni þessari umr. verði frv. þessu vísað til 2. umr. og hv. fjh.- og viðskn.