20.10.1975
Efri deild: 7. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 77 í B-deild Alþingistíðinda. (80)

Símakallkerfi Alþingis

Forseti (Þorv. Garðar Kristjánsson) :

Áður en gengið er til dagskrár vil ég vekja athygli hv. þdm. á því, að símatækjum hefur verið komið fyrir í anddyri hússins. Verður útbýtt vélrituðu blaði með leiðbeiningum um notkun þessa tækis. Þetta er til þess að auðvelda símavörslu Alþingis og bæta þjónustuna við hv. þm. Ég vænti þess, að þau not verði af þessu sem til er ætlast.