12.12.1975
Efri deild: 25. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 1145 í B-deild Alþingistíðinda. (814)
Umræður utan dagskrár
Stefán Jónsson:
Herra forseti. Mér finnst alltaf þakkarvert þegar hæstv. forsrh. stigur í ræðustólinn. Ég hlýði á hann undantekningarlaust með athygli, kannske ekki alltaf með skefjalausri aðdáun og ekki heldur fyrir það sverjandi að mér hætti ekki stundum til þess að rengja hann. Að halda því fram að ég, sem hér stend í ræðustóli, og hv. þm. Gils Guðmundsson, sem kvaddi sér hljóðs utan dagskrár í Nd., höfum gert slíkt að tilefnislausu, af rætni, að við höfum spunnið upp eitthvað til að skapa úlfúð, er náttúrlega fráleitt.
Fréttastofa Ríkisútvarpsins sagði frá því tvisvar í gær að hæstv. utanrrh. hefði gert bretum tilboð í Brüssel. Í fyrra skiptið sagði fréttastofan að það hefðu verið 75 þús. tonn. Nokkru seinna var það leiðrétt og sagt að það hefðu ekki verið nema 65 þús. Callaghan utanrrh. breta sagði fréttamönnum frá því í Brüssel í gær að hæstv. utanrrh. Einar Ágústsson hefði gert bretum 65 þús. tonna tilboð, og Morgunblaðið hefur það eftir Einari Ágústssyni, hæstv. utanrrh. sjálfum, í dag, að hann hafi sagt á blaðamannafundum í gær að ef bretar færu fram á meiri afla af Íslandsmiðum en 65 þús. tonn, þá hlytu íslendingar að segja nei. Það veit hver heilvita maður sem vita vill að ríkisstj. er og hefur verið alla þessa daga að makka við breta.