20.10.1975
Efri deild: 7. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 78 í B-deild Alþingistíðinda. (82)

19. mál, innheimta gjalda með viðauka

Fjmrh. (Matthías Á Mathiesen) :

Herra forseti. Á þskj. 22 er flutt frv. til l. um innheimtu ýmissa gjalda með viðauka, eins og þar segir, 140%. Þetta frv. er áður kunnugt, hefur verið flutt á nokkrum undanförnum þingum, ekki verið talin ástæða til að festa umræddan gjaldaviðauka, hins vegar leitað heimildar á hverju þingi til þess að innheimta þessi ákveðnu gjöld með þessum gjaldaviðauka. Ég sé ekki ástæðu til að fjölyrða um málið, það er áður kunnugt, og legg til að að lokinni 1. umr. verði því vísað til fjh.- og viðskn.