21.10.1975
Sameinað þing: 5. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 79 í B-deild Alþingistíðinda. (85)

Varamaður tekur þingsæti

Forseti (Ásgeir Bjarnason):

Mér hefur borist eftirfarandi bréf :

„Reykjavík, 21. okt. 1975.

Þorv. Garðar Kristjánsson, ritari þingflokks sjálfstæðismanna, hefur í dag ritað mér á þessa leið :

„Samkv. beiðni Matthíasar Bjarnasonar, 1. þm. Vestf., sem nú er á sjúkrahúsi til lækninga, leyfi ég mér með skírskotun til 138. gr. laga um kosningar til Alþ. að óska þess, að 1. varamaður hans, Jóhannes Árnason sýslumaður, taki á meðan sæti hans á Alþingi.“

Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt.

Ragnhildur Helgadóttir,

forseti Nd.

Jóhannes Árnason hefur áður setið á Alþ. og þarf því ekki að rannsaka kjörbréf hans. Býð ég hann velkominn til starfa.