12.12.1975
Neðri deild: 28. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 1169 í B-deild Alþingistíðinda. (854)

19. mál, innheimta gjalda með viðauka

Frsm. (Ólafur G. Einarsson) :

Hæstv. forseti. Fjh.- og viðskn. hefur athugað þetta frv., og álit nefndarinnar er á þskj. 149. Hér er um að ræða frv. um innheimtu ýmissa gjalda með viðauka og er samhljóða að efni til frumvörpum sem koma árlega fyrir hv. Alþ. Nefndin mælir einróma með að frv. verði samþ. óbreytt.