21.10.1975
Sameinað þing: 5. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 85 í B-deild Alþingistíðinda. (91)

11. mál, dagvistunarheimili

Svava Jakobsdóttir:

Herra forseti. Aðeins örfá orð til þess að leiðrétta misminni hv. síðasta ræðumanns, Sigurlaugar Bjarnadóttur. Árið 1974 voru veittar rúmar 80 millj. til þessara mála, þar af fóru 40 millj. í byggingarkostnað. Árið þar á undan, 1973, áður en lögin komu til framkvæmda, var upphæðin komin upp í 12 millj., sem er afleiðing af tillögu, sem ég flutti þá við afgreiðslu fjárlaga, síðla árs 1972. Þar áður, áður en vinstri stjórnin fór að hafa áhrif á gang þessara mála, er hugsanlegt að hægt sé að tala um 1, 2 eða 3 millj. og ekki meira.